Stundum skeður ekkert

Stundum skeður ekkert lengi, lengi on svo allt í einu skeður það. Það verður nú meiri munurinn að fara að vinna upp á gólfi.
Stundum skeður ekkert
Það svo sem hefur skeð margt á Sólvöllum í vor og sumar þó að byggingin hafi ekki þokast svo sem við hefðum viljað. En í haust förum við að pissa og k... í klósett. Þá verðum við nú á klóinu fyrir það mesta fyrstu dagana eða þangað við fáum rasssæri.

Í fyrradag kom maður sem leggur dúka og flísar á böð og þar sem raki reynir á (våtrumsläggare) til að gera kostnaðaráætlun, gera úttekt og gefa góð ráð. Á mánudaginn kemur pípulagningamaðurinn og gerir úttekt á frárennslislögnum  mínum og til að gefa góð ráð. Það er bara allt á fullu á Sólvöllum. Gaman
GB

Heimsókn

Við fengum heimsókn í vikunni. Gamlir grannar úr Hrísey, Mary Ann, Steinar og Anton Már sonur þeirra komu í heimsókn. Við þökkum þeim kærlega fyrir heimsóknina, en þau keyrðu eitthvað á áttunda hundrað km bara til að hitta okkur í nokkra tíma. Margir ferðast yfir lönd og höf og álfur en koma aldrei í heimsókn til okkar í Svíþjóð en okkar gömlu grannar létu sig haf það. Í næsta bloggi er talað um vestan vinda, en þegar þessir góðu gestir voru hjá okkur var fyrsti vestanvindurinn sem komið hefur eftir vindinum sem talað er um í næsta bloggi
Heimsókn
Valdís ásamt gestunum uppi á Sveppinum í Örebrú undir íslenska fánanum sem jafnan er þar við hún. Sveppurinn er aðal vatnsgeymir Örebroara, kaffisölustaður og hinn besti útsýnisstaður.
GB

Að láta sér detta í hug að gera það ómögulega

Að stinga upp tré og færa á nýjan stað er nauðsynlegt að gera á vorin áður en lauf- og blómhnappar fara að bæra á sér, eða þá að hausti til þegar lauf eru fallin. En á Sólvöllum gengur þetta ekki svona til. Það hafði verið vestan vindur í fimm daga um síðustu mánaðamót og við urðum leið á þessu. Hjá nágrönnunum sunnan við okkur var blæja logn bakvið all háan trjágróður og svo hafa þau stórt svæði til að vera á í logninu og sólinni þegar vestanvindurinn næðir hjá okkur. Ekki svo sem að þessi vestanvindur næði mjög marga daga á ári hjá okkur en okkur þykir sem það fari vaxandi. Þeir eru því líka sammála bændurnir Mikki og Arnold og við hlustum mikið á hvað þeir segja. En í lok þessara vestanvinda um mánaðamótin féll hugmynd af himni ofan bara alveg fyrirvaralaust. Við gróðursetjum tré við lóðarmörkin að vestan en vestan við húsin sjálft gróðursetjum við sírenu sem hægt er að klippa og halda í skefjum svo að við höldum útsýninu til fjallana lágu í vestri, Kilsbergen Eftir nokkur ár verðum við svo komin með sama skjól og nágrannarnir áðurnefndu. Hugmyndin samstundis samþykkt og staðfest með handabandi. Ég hringdi í Mikka og spurði hvort hann gæti hugsað sér að grafa skurð fyrir runnana og holur fyrir níu tré. Mikki var óvenju tregur og sagði eiginlega ekki neitt um þetta. Svoleiðis lauk samtalinu. Fyrir hádegi daginn eftir rann í hlað svartur jeppi með palli, nýlegur og glansandi. Þar komu Mikki og Patrik vinnumaður hans. Þegar Mikki sá hvað þetta fjallaði um var það ekkert mál. Hann sótti gamlan traktor með gröfuútbúnaði og svo gróf hann þetta á  -ja, túlega um það bil hálftíma. Svo komu þeir félagar í kaffi og pönnukökur. Patrik grunaði að Valdís lumaði á einhverju gómsætu svo að hann lullaði framhjá á hjóli meðan við vorum í kaffinu og Mikki kallaði á hann og sagði honum að hann fengi sjálfsagt pönnukökkur líka. Og þær fékk hann.

Þegar þeir félagar fóru horfðum við Valdís yfir alveg voðalega útleikinn vetvanginn. Mold, möl, rætur, grjót og þökur lágu í svo voðalegu óreiðu að það var eitthvað það versta sem sést hefur á Sólvöllum. En hvað um það, við settum í gang af þvílíkum krafti að við erum hissa á því enn í dag. Tvær kerrur af skít voru sóttar í hrossaskítshauginn hans Mikka og moldarkerra var sótt til Örebro og svo önnur moldarkerra. Skóflurnar gengu ótt og títt, grjóthnullungarnir flugu upp í hjólbörurnar og hjólbörurnar þutu í burtu með grjótið. Mold, skítur, og mátuleg blanda af möl runnu eins og flóð niður í holurnar og skurðinn. 50 sírenur og ein hengibjörk voru sótt til hans Ingimars í Örebro (hann var á Íslandi í fyrra). Smá leiðbeiningar voru meðteknar og svo var farið hratt til baka á Sólvelli og gróðursett með sama hraði. Þegar innkaupin hjá Ingimar voru komin á sinn stað vantaði níu trjáplöntur sem kona í gróðrarstöð (ekki hjá Ingimar) ráðlagði okkur að sækja út í skóg. Hún mátti ekki ráðleggja svona en sagði að það væri bara svo mikið, mikið ódýrara fyrst við hefðum skóg. Svo sóttum við átta hlyni og núna komum við að því sem ekki er hægt. Hlynirnir voru full laufgaðir og í miklum vexti. Einn hafði vaxið 52 sm. Nú vantaði eina plöntu til og fyrir valinu varð eik rúmlega tveggja metra há. En viti menn; við náðum ekki upp eikinni. Við völdum aðra minni, mun minni og mjórri og gróðursettum hana. Síðan tók Valdís vatnsslönguna og vökvaði og sprautaði miklu vatni á molduga jörðina kringum athafnasvæðið. Að kvöldi þess dags var varla hægt að merkja að þarna hefði verið svo mikill gauragangur sem þó hafði verið. Hvað var gert á hvaða degi og hvenær var matur og kvöld og svefntími er ekki í neinu samhengi, en verkið tók rúmlega tvo daga. Allar plöntur voru  lifandi enn í gær rúmum hálfum mánuði seinna en eikarplantan þó sýnu lélegust, renguleg og óásjáleg og mátti vara sig á að ganga ekki á hana.
Að láta sér detta í hug að gera það ómögulega
Í gær var ég að snudda út í skógi og kom að eikinni sem okkur tókst ekki að ná upp. Hún var þá nánast lögst á hliðina en var vel lifandi. Heim fór ég og gaf skýrslu og við urðum sammála um að fara nokkuð seint á kvöldinu og ná henni upp hvað sem það kostaði og skipta um eik. Svo gerðum við og vonuðum að enginn skildi hvað við værum að gera því að þetta er sá alrangasti tími til að flytja tré sem hugsast getur. Á myndinni sést ekin þegar við vorum komin með hana heim á lóð. Síðan var hún gróðursett með góðu hugarfari og gengið betur frá henni en nokkru öðru tré sem við fluttum í þessari atrennu. Svo sjáum við hvað setur og vonum það besta.
GB

Og eikin er risin upp

Og eikin er risin upp
Við gengum alveg óvenjulega samviskusamlega frá eikinni og nú er ekkert meira að gera en bara vona að hún sigri í lífsbaráttunni. Eikin stendur þarna á milli hælanna fjögurra.
GB

Gott að borða epli

Valdís er dugleg að kaupa epli en ég er duglegur við að gleyma að borða þau.
Gott að borða epli
En það er alveg sérstaklega gott að tálga í sig epli í síðdegissólinni á Sólvöllum að loknum vinnudegi og þegar ég er búinn að skipta um föt. Í dag ver eitt svona gott tilfelli og ég mundi þá eftir að fá mér epli.
GB

Við erum ennþá til

Halló halló, við erum hérna ennþá. Við erum sáralítið heima og það er orðin spurning hvar við eigum heima, hér í Örebro eða á Sólvöllum. En alla vega, núna erum við í Örebro en auðvitað tókum við með okkur heim mynd af útsýninu á Sólvöllum.

Við erum ennþá til

Myndin er tekin til vesturs yfir gamalt tún eða akurland sem ekki er nytjað um þessar mundir en þó slegið einu sinni á ári til að halda því opnu og utan trjágróðurs.
GB

Sumar á Sólvöllum

Það er sumar og það hefur ekki verið hjá því komist að taka eftir því. Í blómahafinu suða hunangsflugurnar svo að það er sem lágur þotuniður að vera þar nærri. Hitinn hefur verið um 30 gráður dag eftir dag og svitinn hefur hreiðrað um sig undir höndum og víðar. Það er betra að gleyma ekki vatninu og ef það gleymist ekki er allt í lagi með hitann og það gengur þokkalega með byggingavinnuna.

Sumar á Sólvöllum

Í gær var spáð miklu þrumuveðri en það er eins og það hafi eitthvað mistekist með það. Svo sem enginn söknuður að en regn væri vel þegið.
GB
RSS 2.0